Halló Halló

Ég var orðin leið á hinnu blogginu okkar hjóna, alltaf eitthvað vesen á því svo ég ákvað að prófa moggabloggið.

Loksins koma einhverjar fréttir á bænum, ekki góðar fréttir samt. Í fyrsta skipti á ævinni var ég að lenda í umferðaróhappi og þar að auki á nýju smárútunni minni , það var kerlingarb.......a sem keyrði á mig og ég fór næstum að gráta að hún skildi keyra á nýja bílinn minn en allavega held ég að ég var í rétti því ég var að beygja úr hringtorgi úr innri hring þegar hún kom eins og skrattinn úr sauðaleggnum á ytri hringnum og beint á smárútuna mína. En það slasaðist enginn og bíllinn ekki ónýtur sést varla á honum, smá beygla og hjólkobburinn brotinn því kerlingarb......an var á dótabíl(yaris)miðað við smárútuna og hún keyrði beint á dekkið mitt. Ekki meira um það, ég klára námskeiðið á morgun og er skráð strax á annað námskeið í meira bókhaldi, veit samt ekki hvað ég næ að blikka hana Önnu mína mikið, hún er alveg búin að redda mér svo ég geti verið á þessu skólabrölti. Skólinn er nefnilega á versta tíma frá hálf þrjú til hálf fimm og einmit á þessum tíma er maður annsi upptekinn að sinna börnunum, svo ég þarf alltaf að redda einhverjum að sækja Högna, Anna Lísa þarf að vera ein heima og Bryndís í pössun og það er bara alls ekkert auðveldast í heimi að redda þessu. 

Það er allavega ein góð frétt, ég er loksins búin að selja Grænu skjaldbökuna(opelinn) fer á morgun niðri Lýsingu að skrifa undir það og þá er ég laus við hann.

 Nóg skrifað í bili svo bless og keyrið varlega.

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Brynja Lúthersdóttir
Brynja Lúthersdóttir
'Eg heiti Brynja og er 26 ára eiginkona og mamma  Eiginmaður minn heitir Davíð Örn og við eigum þrjú börn Önnu Lísu, Högna Snæ og Bryndísi Birnir.

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • sáttur með eggið sitt
  • Sæta barn
  • Páskafjör
  • fallegust í heimi
  • Sterki maðurinn minn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 360

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband