Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

meiri veikindi

Viti menn, loksins þegar Önnu Lísu er batnað varð Bryndís veik, vaknaði með bullandi hita í morgun og er svo slöpp. En við létum okkur hafa það að kíkja í afmæli hjá tengdaömmu minni þó hún væri slöpp og að sjálfsögðu fengum við gott kaffi og með því, takk fyrir okkurSmile

'Eg fór aftur á djammið á föstudaginn með Höllu systir og Bjarna vin hennar og kíktum við á Hressó og svaka stuð var þar, ég skemmti mér allavega mjög vel. Dalton var að spila og þeir eru annsi góð partýhljómsveit, allavega leiðist manni ekki þegar þeir spilaWhistling. Mér er farin að líða eins og versta grúpppía því altaf þegar ég fer á djammið enda ég þar sem þeir spila, svo kíktum við smá stund á Dubliners og þar hitti ég voða sætan þjón sem var írskur og svaka talaði hann flott og verð bara rosaskotin í öllum sem tala írsku eða skosku(sama hvort það sé kall eða kona)er að hugsa um að senda Davíð til Skotlands í nokkra mánuði(ég að sjálfsögðu þyrfti að fara með svo hann yrði ekki skotin í skotunum) svo hann fái svona skoskan hreim, kannski svolítið lang sóttGrinætli það verði ekki langt þangað Davíð hleypi mér aftur útWinkég fæ allavega að fara út eftir mánuð því þá förum við hjónin til Noregs með frændsystkinum Davíðs og mökum þeirra og mikið hlakkar mér tilLoL(ætla rétt svo að vona að ég rekist ekki á Dalton þar, þá fer þetta að vera eitthvað skuggalegt)hahaLoLLoL

Ekkert meira hér í fréttum, ætli Högni minn verði ekki orðinn lasinn næst þegar ég skrifa, vona ekkiWoundering ég ætla allavega ekki að skrifa um djamm næst ég lofaErrmog helst ekki veikindiErrmbless

1619193390_e12988ae9d

ég og Halla í Skotlandi í haust, við gerðum líka eitthvað annað en að skoða skotanaWink


« Fyrri síða

Höfundur

Brynja Lúthersdóttir
Brynja Lúthersdóttir
'Eg heiti Brynja og er 26 ára eiginkona og mamma  Eiginmaður minn heitir Davíð Örn og við eigum þrjú börn Önnu Lísu, Högna Snæ og Bryndísi Birnir.

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • sáttur með eggið sitt
  • Sæta barn
  • Páskafjör
  • fallegust í heimi
  • Sterki maðurinn minn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 360

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband