25.2.2008 | 12:04
HæHæ
Þessi helgi sem var að líða var bara alveg ágætt. Ég fór í júróvísjonparty til Pálínu og var alveg sátt við úrslitin og skálaði oft fyrir þeim(kannski aðeins of oft)Skelltum okkur svo í bæin á ball, fórum á Gaukinn og viti menn voru ekki Dalton gaurarnir þar að spila og nú er borin von að ég fái eitthvað annað lag á heilan, hitti líka frænda minn sem ég hitti svona einu sinni á ári eða svo og annsi skemmti ég mér vel, er allavega með harðsperrur því ég dansaði svo mikið og talaði svo mikið og ég hló svo mikið, brosti oft yfir því í gær þegar ég mundi eftir einhverjum brandara sem ég sagði eða heyrði, þó þeir væru misgáfulegir og ég verð bara að segja við fólkið sem ég fór heim með, kærar þakkir fyrir mig ég hef ekki skemmt mér eins vel lengiég allavega komst heim um síðir, loksins þegar taxin lét sjá sig og það má deila um það hvort ég kom seint eða snemma heim
Efast um að ég fara á svona skrölt á næstunni, ég var allavega ekki mjög ónýtt í gær, það varð samt ekki mikið úr deginum hjá mér og það var bara annsi gott að fara að sofa í gærkveldi
Bless
Tenglar
hetjuhornið
myndasíðan okkar
vinir og vandamenn
Börnin
Áhugavert
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.