27.8.2008 | 15:21
jæja
Nú er ég byrjuð í skóla, og það er annsi skrítið að þurfa að vakna á morgnana og fara út og halda athyglinni í skólanum, en ég ætla ekki að gefast uppþað er frábært fólk í skólanum með mér og ég hugsa að mér eigi eftir að ganga bara alveg ágætlega, svolítil viðbrigði frá heimilisstörfunum og kúkableyjunum
Högni minn byrjaði í fyrsta bekk í gær og var svo spenntur í morgun að hann var farinn að bíða við útidyrahurðina kl. 7 Anna Lísa mín er bara orðin mikil skvísa, komin í fjórða bekk og litla skottan mín byrjuð á leikskóla, ekki alveg jafn spennt fyrir því og Högni að byrja í skóla en held að það eigi bara eftir að koma hjá henni (vona það allavega)
Davíð er stanslaust að vinna, kemur heim yfirleitt þegar allir eru farnir að sofa (stundum ég líka) voða leiðinlegt en nauðsynlegt til að við eigum í okkur og á.
þá eru allar fréttirnar komnar í bili og ég verð kannski duglegri að skrifa svona þegar það er komin regla á heimilið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.7.2008 | 11:34
lífið ekki gott þessa dagana
'Eg var að láta draga úr mér jaxlana mína og meira hvað það var vontþetta var bara eins og á miðöldum, tannlæknirinn með töng og hamaðist á tönninni og allt út í blóði og það þurfti að sauma og alles, svo ég geri ekki neitt þessa daganna
Erum samt að hugsa um að kíkja í sveitinna mína og skoða Kátt í Kjós á laugardaginn.
Annars er allt gott að frétta hjá okkur þessa daganna, krakkarnir allir hressir, Anna Lísa að fara til pabba síns í kvöld og verður í heilan mánuð, gvuð hvað ég mun sakna hennar og allra stælana hennar því mín er byrjuð á gelgjunni, hugsið ykkur hvað hún byrjar snemma, hún er rétt að verða 9 ára, gvuð hjálpi mér þegar hún verður 13. Það verður bara að vera seinni tíma vandamál
Jæja ætli ég verði ekki að fara að gera eitthvað, svo bless og hafið það gott um helginna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2008 | 18:16
það var mikið að beljan bar
og að Brynju datt í hug að skrifa á bloggið sitt
Jæja við erum allavega komin heim ú sólarlandaferðinni okkar og við vildum óska að vera þar enn þá(allavega ég)við vorum á mjög góðu hóteli með allt innifalið þar á meðal drykkir svo malibúið drukkið í lítrataliHitinn fór mest upp í 36°c og þá fannst okkur aðeins of heitt Högni minn varð 6 ára úti og gáfum við honum skólatösku og ninjakarla og héldum smá afmæli fyrir hann
Hér er hann að opna pakkan og svo fékk hann þessa ágætu köku líka
Svo var kíkt í dýra garð og farið á camelbak og skoðað öll dýrin krakkarnir fengu að halda bæði á krókódíl og páfagaukum, við vorum alveg búin á því eftir þann dag
Camel ferðalagið
Svo skelltum við okkur á diskótek eitt kvöldið og var ungur piltur fenginn til að passa grísina
og fararstjórinn skellti sér með
Svo ætla ég bara að skella nokkrum myndum til viðbótar hér inn og við skulum bara láta þær tala
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.6.2008 | 21:46
KANARÍ
VIÐ ERUM AÐ FARA Á KANARÍ EÐA KANNSKI BARA FARIN AF STAÐ ÞEGAR ÞÚ LEST ÞETTA
KOMUM EFTIR TVÆR VIKUR AFTURHAFIÐ ÞAÐ GOTT Á KLAKANUM Á MEÐAN
SÓL SÓL SKÍN Á MIG OG EKKERT SKÝ TIL AÐ FÆRA SIG(vonandi ekki allavega)SÓL SÓL SKÍN Á MIG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2008 | 13:20
Glæsileg gæsaveisla
En aðeins of margir kokteilar það kvöldiðEn rosalega skemmti ég mér vel og ég held að gæsin var ánægð með kvöldið, typpakökurnar vöktu mikla lukku, mjög vel heppnað í alla staði
Krakkarnir eru allir hressir og við stefnum á fjölskylduútilegu næstu helgi, ef veður leyfir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2008 | 22:38
Engar fréttir góðar fréttir....
.......var sagt í sveitinni í gamla daga og er án efa satt
Engar fréttir héðan frekar en fyrri daginn, krakkarnir hressir og fjörugir, Davíð alltaf að vinna eins og venjulega(ekki við mikla lukku hjá húsfreyjunni)en svona er lífið, maður verður að eiga á sig og í
'Eg og Halla erum búnar að standa í stórræðum í kvöld við að baka 12 typpi, hvorki meira né minna, erum að fara að gæsa vinkonu okkar sem er að fara að giftast frænda okkar og við ætlum að bjóða uppá eftirmatinn sem sagt typpakökur, okkur fannst allt sem sagt var við okkur í kvöld vera annsi klúrt og vorum með aulahúmorinn þokkalega í lagi við baksturinn
þá er ekkert meira sem ég hef að segja svo bless, ætli ég skrifi ekki aftur í næsta mánuði næst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2008 | 21:59
ÞOLI EKKI VEIKINDI:(:(
Við mæðgur erum búnar að vera lasnar í marga marga daga að mér finnst allavega erum búnar að vera heima síðan á sunnudaginn og því miður virðist mér ekki vera að batna en það er aðeins farið að minnka horið hjá henni og hún orðin heldur hressari.
Þannig að það eru ekki neinar fréttir héðan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 21:45
Veikindi:(:(:(
Þoli ekki veikindi, nú er Bryndís mín orðin veiker með streftakokka á bleyjusvæðinu og soldin hita með því, fórum til læknis í dag og fengum pensílin og doktorinn lofaði að við ættum að sjá mun eftir ein til tvo sólarhringa, svo vonandi er það rétt.
Nú er sumarið loksins að komaloksins, Davíð verður reyndar að vinna á sumardaginn fyrsta en verður í fríi á föstudaginn í staðin, við komumst hvort sem er ekki á neinar sumarskemmtunnir vegna veikinda svo við nýtum bara helgina í staðin, ekkert samt planað, kemur í ljós eftir heilsu á heimilinu
Engar krassandi fréttir samt héðanekkert frekar núna en áður
Kannski ég ætti bara að hætta að bulla hér, annars fer ég að ljúga einhverjusvo bless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 14:53
Get svarið fyrir....
...að þetta er annað skiptið í dag sem ég sest hér niður og ætla að blogga eitthvað en það kemur bara ekki neitt upp í hugan á mér sem er þess virði að tala um eða þá deila með öðrum
Nema ferðin til Noregs var mjög vel heppnuð í alla staði og var hrein snilldgæti skrifað heilmikið um það en það sem gerðist í Noregi er best geymt í Noregi
Allir eru hressir á heimilinu og því engar fréttir, bless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2008 | 17:34
Hvernig á að gera konur hamingjusamar
> Það er ekki erfitt.
>
> Til að gera konu hamingjusama, þarf maðurinn bara að vera:
> 1. vinur
> 2. félagi
> 3. ástmaður
> 4. bróðir
> 5. faðir
> 6. húsbóndi
> 7. yfirmaður
> 8. rafvirki
> 9. trésmiður
> 10. pípari
> 11. handlaginn
> 12. skreytimeistari
> 13. stílisti
> 14. sérfræðingur í kynlífi
> 15. mannþekkjari
> 16. sálfræðingur
> 17. hagfræðingur
> 18. reiknimeistari
> 19. góður huggari
> 20. góður hlustandi
> 21. skipuleggjari
> 22. góður faðir
> 23. snyrtilegur
> 24. samúðarfullur
> 25. sportlegur
> 26. hlýr
> 27. skemmtilegur
> 28. aðlaðandi
> 29. snillingur
> 30. fyndinn
> 31. hugmyndaríkur
> 32. mjúkur
> 33. sterkur
> 34. skilningsgóður
> 35. þokkafullur
> 36. prúður
> 37. metnaðarfullur
> 38. hæfileikaríkur
> 39. þolgóður
> 40. skynsamur
> 41. trúr
> 42. ábyggilegur
> 43. ástríðufullur
> ..og gleymir aldrei að:
> 44. gefa henni gjafir reglulega
> 45. fara með henni að versla
> 46. vera heiðarlegur
> 47. vera örlátur
> 48. að stressa hana ekki
> 49. horfa ekki á aðrar konur
>
> og um leið þá verðurðu líka að:
> 50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
> 51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
> 52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer
>
> Það er mjög áríðandi:
> að gleyma aldrei:
> 1. afmælisdögum
> 2. brúðkaupsdögum
> 3. plönum sem hún hefur ákveðið
> __________________________________
>
>
> Til að gera karlmann hamingjusaman:
> 1. Gefa honum að borða
> 2. Sjá til að hann fái það reglulega
> 3. og þegja svo....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
hetjuhornið
myndasíðan okkar
vinir og vandamenn
Börnin
Áhugavert
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar